Innihaldslýsing

900 g kjúklingalundir, t.d. frá Rose Poultry
240 ml súrmjólk
salt og pipar
1/4 tsk hvítlaukssalt
200 g hveiti
1 tsk salt
1 tsk pipar
1 tsk hvítlaukssalt
1 tsk þurrkað timían
1 tsk paprika
1 tsk lyftiduft
1 tsk chilíflögur
Fyrir 4

Leiðbeiningar

1.Setjið kjúklinginn í skál. Bætið súrmjólk, salti, pipar og hvítlaukssalti saman við. Blandið öllu vel saman og leyfið að marinerast í að minnsta kosti klukkustund.
2.Setjið steikingarolíu í pott eða í djúpa pönnu og hitið vel.
3.Blandið saman í skál hveiti, salti, pipar, hvítlaukssalti, timían, papriku, lyftidufti og chilíflögum.
4.Takið kjúklinginn úr marineringunni og veltið upp úr hveitblöndunni.
5.Steikið í olíunni þar til kjúklingurinn er fulleldaður. Steikið aðeins nokkra bita í einu.
6.Hitið hamborgarabrauðin og raðið saman. Setjið kál og lauk, þá kjúklinginn og síðan hrásalatið.
7.Gerið hrásalatið. Skerið kálið og gulrætur í smáa strimla og bætið hinum hráefnunum saman. Geymið í ísskáp.

Uppskriftin sem unnin er að fyrirmynd www.kitchensanctuary.com er gerð í samstarfi við Innnes.

Leave a Reply

Your email address will not be published.

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.