Færslan er gerð að fyrirmynd matarbloggsins döðlur&smjör og er unnin í samstarfi við Innnes
12 döðlur | |
1 dl vatn | |
5 eggjahvítur | |
100 g döðlur, saxaðar | |
50 g dökkt súkkulaði frá Rapunzel | |
1 1/2 dl kókosmjöl | |
100 g dökkt súkkulaði frá Rapunzel (ég notaði með appelsínubragði) | |
2 msk kókosolía frá Rapunzel | |
1 /2 dl kókosmjólk frá Blue dragon |
Fyrir 6-8
1. | Hitið 12 döðlur og 1 dl vatni saman í potti. Látið malla við vægan hita þar til döðlurnar eru orðnar að mauki. Kælið. |
2. | Stífþeytið eggjahvíturnar. Saxið 50g af súkkulaði, 100 g af döðlum og setjið saman við eggjahvíturnar ásamt döðlumauki og kókosmjöli. Blandið varlega saman við með sleif. |
3. | Látið í um 20 cm form og bakið við 175°c í 20 mínútur. Takið úr ofni og kælið. |
4. | Hitið 100 g súkkulaði, kókosolíu og kókosmjólk saman yfir vatnsbaði. Látið yfir kökuna. |
5. | Skreytið kökuna með ferskum berjum og berið fram með rjóma. |
Leave a Reply