Setjið kjúkling, karrý og salt saman í poka með rennilás eða í skál og blandið vel saman. Látið marinerast í smá stund. Látið olíu á pönnu og steikið kjúklinginn í 4-5 mínútur á hvorri hlið eða þar til kjúklingurinn er fulleldaður. Skerið í niður í litla bita.
Súpa
2 msk smjör
1 rauð chilí
3-4 hvítlauksrif
1 laukur
1/2 púrrulaukur
1 paprika
3 msk karrý
150 g tómatpúrra
500 g tómat passata (maukaðir tómatar)
1 l soðið vatn
1 msk kjúklingakraftur frá Oscar (eða 2 teningar)
3-4 msk sýrður rjómi eða hálft box
3 dl rjómi
4 msk sweet chilí sósa frá Blue dragon
2 msk sítrónusafi
Skerið grænmetið smátt niður. Setjið smjör í sama pott og kjúklingurinn var steikur í (þvoið ekki á milli). Skrapið út kjúklingakjötið í botninum það gefur súpunni gott bragð. Steikið grænmetið við miðlungs hita í 2-3 mínútur eða þar til það er farið að mýkjast. Bætið tómatpúrru og maukuðu tómötunum saman við. Blandið vel saman og steikið í 1-2 mínútur. Bætið þá rjóma og sýrðum rjóma út í pottinn og síðan heitu vatni með kjúklingakrafti. Látið malla (en ekki sjóða) í 5 mínútur. Bætið kjúklingabitunum saman við og látið malla í aðrar 5 mínútur. Setjið að lokum sweet chilí sósu, sítrónusafa, salt og pipar saman við. Smakkið til að eigin smekk. Berið fram með meðlæti að eigin vali.
Leave a Reply