Innihaldslýsing

1 bolli hveiti
1 tsk lyftiduft
1/2 tsk matarsódi
1/4 tsk salt
60g mjúkt smjör
1/2 bolli kókos & möndlusmjör frá Rapunzel
3/4 bolli cristallino hrásykur frá Rapunzel
2 stór egg við stofuhita
2 tsk vanilludropar
2 plötur 70% súkkulaði frá Rapunzel (160g)
1 bolli pekanhnetur saxaðar
Sjávarsaltflögur
Þessar kökur eru algjörlega ómótstæðilegar. Í þeim er leynihráefni sem gerir þær ótrúlega mjúkar að innan. Ég nota í þær kókos og möndlusmjörið frá Rapunzel sem gefur einstakt bragð og áferð.      

Leiðbeiningar

1.Blandið saman þurrefnum í skál og setjið til hliðar
2.Setjið smjör og sykur saman í skál og þeytið. Bætið við kókos & möndlusmjöri og þeytið áfram. Bætið við einu eggi og hrærið áður en síðara egginu er bætt út í. Bætið vanilludropunum saman við og hrærið aðeins.
3.Setjið þurrefnin saman við smjör/sykurblönduna og þeytið bara rétt þannig að deigið loði saman. Setjið saxað súkkulaði og hnetur saman við með sleikju.
4.Hitið ofninn í 175°C. Setjið bökunarpappír á ofnplötu og mótið
5.Bakið kökurnar í 14-16 mín. Fylgist vel með, þær eru tilbúnar þegar þær eru orðnar brúnar á köntunum. Varist að baka þær of lengi.
6.Þegar þær eru tilbúnar stráið sjávarsaltflögum yfir kökurnar ef vill og eftir smekk. Látið kökurnar kólna alveg á grind.

Þessar kökur eru algjörlega ómótstæðilegar. Í þeim er leynihráefni sem gerir þær ótrúlega mjúkar að innan. Ég nota í þær kókos og möndlusmjörið frá Rapunzel sem gefur einstakt bragð og áferð.

 

 

Bio-Product: Coconut & almond butter with date - Rapunzel Naturkost

 

Færsla og myndir eftir Völlu í samstarfi við Innnes ehf.

Leave a Reply

Your email address will not be published.

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.