1 1/2 dl OTA haframjöl | |
1 1/2 dl möndlur | |
5 msk kakó | |
1 tsk vanillduft eða dropar | |
1 tsk lyftiduft | |
klípa salt | |
15 ferskar döðlur | |
3 þroskaðir bananar | |
3 egg | |
100 g dökkt súkkulaði, saxað | |
Ofaná kökuna: | |
75 g dökkt súkkulaði, saxað | |
kókosmjöl |
Fyrir 6-8
1. | Malið haframjöl og möndlur saman í matvinnsluvél eða blandara þar til áferðin er orðin hveitilík. |
2. | Látið í skál ásamt kakó, vanillu, lyftidufti og salti. |
3. | Maukið döðlur, bönunum og eggjum saman. Það fer eftir smekk hvers og eins hvort þið grófhakkið þetta eða maukið alveg. Sumum finnst gott að hafa smá bita í kökunni. |
4. | Blandið saman við hveitiblönduna og saxað súkkulaði og látið í 20 cm form með smjörpappír. |
5. | Látið í 180°c heitan ofn í 35-40 mínútur. Stingið gaffli í kökuna undir lok baksturstímann. Ef ekkert deig kemur með þegar honum er lyft upp þá er kakan tilbúin. |
6. | Takið úr ofni og látið strax saxað súkkulaði yfir hana. Dreyfið úr því þegar það er bráðið og ef vill getið þið stráð kókosmjöli yfir. |
Leave a Reply