Þessi litríka bolluveisla er hreint ævintýri fyrir krakkana! Nóg af litríku sælgæti frá Nóa Síríus og karamellukremið er algjör draumur og passar svo vel við vatnsdeigsbollurnar. Mínir krakkar vilja bara hafa bollurnar einfaldar og vilja til dæmis ekki sultu svo ég hafði það í huga þegar ég setti þessar saman. Gott krem, rjómi og nammi og meira þarf ekki. Uppskriftin er ekki mjög stór en það er auðvelt að tvöfalda hana eða jafnvel stækka hana enn frekar ef bjóða á fjölskyldunni í bollukaffi. Þessa uppskrift hef ég notað í mörg ár og klikkar aldrei.
Leave a Reply