
Fyrir 4-6
| 1. | Myljið Tuc kex og bætið varlega saman við eggjahvíturnar með sleif ásamt lyftidufti og söxuðum möndlum ef þið notið þær. |
| 2. | Þeytið eggjahvíturnar og bætið sykri saman við smátt og smátt. Hrærið þar til marengsinn er orðinn stífur og lekur ekki. |
| 3. | Skiptið marengsinum niður í 4-6 kökur á ofnplötu með smjörpappír. Setjið í 175°c heitan ofn í 20-25 mínútur. |
| 4. | Skyrkrem: Þeytið rjómann og bætið varlega saman við skyrið með sleif. |
| 5. | Hindberjasósa: Setjið hindber og sykur í pott og sjóðið þar til hindberin eru maukuð og sósan hefur þykknað. Kælið lítillega. |
| 6. | Setjið kremið á kökuna og þá hindberjasósu og berið fram. |

Leave a Reply