Af því að ostakökur eru hreinlega bestar varð ég að gera vegan útgáfu af New York ostaköku. Þær eru gjarnan bakaðar en ég vildi þó hafa þessa hráa. New York ostakökurnar frægu eru í grunninn vanillufylling á stökkum kexbotni sem ber keim af kanil. Yfir hana er gjarnan hellt jarðarberjasósu og borin fram með jarðarberjum. Ég tók mér smá skáldaleyfi með þessa en fullyrði að þessi er eins sú allra besta sem ég hef smakkað. Vegan eða ekki.
Botninn er heimagert hafrakex og það er auðvitað vegan líka. Uppskriftin af kexinu er frekar stór en það kemur ekki að sök þar sem það er fljótt að hverfa ofan í heimilisfólk. Fyllingin samanstendur af kasjúhnetum sem lagðar voru í bleyti og Oatly tyrkneska jógúrtinu en mér finnst það henta sérlega vel í tertur eins og þessa.
Fyllingin er frekar mjúk og heldur sér ágætlega en ég bera hana samt hálffrosna. Ef þið viljið hafa hana stífari mæli ég með að setja 1 tsk af agar agar dufti í fyllinguna. Jarðarberjasósuna er hægt að frysta með kökunni eða setja hana yfir eftir á, hvorutveggja er alveg ljómandi.
Leave a Reply