
| 350 g geitaostur | |
| 1 tsk estragon | |
| 1 msk hunang | |
| ¼ tsk sjávarsalt | |
| hnífsoddur svartur pipar | |
| 1 egg | |
| 60 g brauðrasp | |
| 60 g hveiti | |
| salt og pipar | |
| olía til steikingar |
12-16 kúlur
| 1. | Blandið geitaosti, estragoni, hunangi, salti og pipar. Smakkið til. Rúllið í 12-14 kúlur. |
| 2. | Þeytið egg ásamt nokkrum dropum af vatni. |
| 3. | Setjið raspið á disk og kryddið með ½ tsk af salti og ¼ tsk af pipar. Látið hveiti á annan disk og kryddið með salti og pipar. |
| 4. | Rúllið geitaostinum í hveiti, þá egg og síðan raspið. Setjið á disk og endurtakið með þær sem eftir eru. |
| 5. | Hitið olíu og steikið kúlurnar, nokkrar í einu, þar til þær eru orðnar gylltar og stökkar. |
| 6. | Setjið í skál og dreypið hunangi og smá chilíflögum. |
Leave a Reply