Innihaldslýsing

5 egg aðskilin
65g sykur
1/2 l. Rjómi frá Örnu, þeyttur
360g Toblerone (1 stórt stykki)
Þessi uppskrift af Toblerone ís er sú allra besta sem ég hef prófað. Ætli það séu ekki svona 10 ár síðan ég gerði hana fyrst og án undantekninga er ég beðin um uppskriftina. Ég held að ástæðan sé tvíþætt. Annars vegar nota ég eggjahvíturnar líka og stífþeyti þær og hræri varlega saman við ísblönduna í...

Leiðbeiningar

1.Aðskilið eggin og takið hvíturnar frá.
2.Þeytið eggjarauður og sykur vel saman þar til létt og ljóst.
3.Bræðið 200g af toblerone yfir vatnsbaði og saxið rest.
4.Stífþeytið rjómann í einni skál og stífþeytið eggjahvíturnar í annarri.
5.Kælið brædda toblerone-ið aðeins og blandið því varlega saman við eggjarauðu blönduna.
6.Hrærið rjómanum varlega saman við eggjarauðublönduna ásamt söxuðu toblerone-i.
7.Að síðustu hrærið þið varlega stífþeyttu eggjahvítunum vel en varlega saman við ísblönduna með sleikju. Skiptið í form og frystið í að minnsta kosti 5 tíma en helst yfir nótt.

Þessi uppskrift af Toblerone ís er sú allra besta sem ég hef prófað. Ætli það séu ekki svona 10 ár síðan ég gerði hana fyrst og án undantekninga er ég beðin um uppskriftina. Ég held að ástæðan sé tvíþætt. Annars vegar nota ég eggjahvíturnar líka og stífþeyti þær og hræri varlega saman við ísblönduna í lokin, hinsvegar er bara mjög mikið Toblerone í henni, bæði brætt og saxað. Og síðan en ekki síst hef ég notað Örnu rjómann síðan hann kom á markað og því er ísinn ekki eins þungur í magann en mér finnst muna miklu að nota laktósafrían rjóma.

Þessi uppskrift er frekar stór og ég mæli með að setja blönduna í 2 meðalstór form eða bara skipta niður í þau form sem ykkur hugnast.

Og svo til þess að toppa þetta algerlega mæli ég með súpereinfaldri Toblerone sósu með.

Fullkominn í áramótaboðið!

Gleðilegt nýtt ár kæru vinir og takk fyrir samfylgdina á árinu sem er að líða!

 

 

Leave a Reply

Your email address will not be published.

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.