

| 700 g kjúklingalæri frá Rose Poultry | |
| 60 g hveiti | |
| 60 g nachos flögur, t.d. frá Mission | |
| 40 g brauðrasp,mæli með Panko | |
| 2 tsk chilikrydd | |
| 1 tsk cumin (ath ekki kúmen) | |
| 1 tsk salt | |
| 1/2 tsk paprikukrydd | |
| 1/2 tsk hvítlauksduft | |
| pipar | |
| 1 egg | |
| 60 ml safi úr jalapeno krukku | |
| olía | |
| salt og pipar |
| 1. | Setjið hveiti í eina skál. |
| 2. | Látið egg og safa frá jalapeno í aðra skál og hrærið saman. |
| 3. | Í þá þriðju setjið þið muldar nachos flögur, brauðrasp, chilíkrydd, cumin, salt, paprikukrydd, hvítlauksduft og pipar og blandið vel saman. |
| 4. | Dýfið kjúklingalæri fyrst í hveiti, þá eggjablönduna og að lokum í nachosmulninginn. Setjið á bökunarplötu með smjörpappir og dreypið smá af ólífuolíu yfir kjúklinginn. Endurtakið með hin kjúklingalærin. |
| 5. | Eldið í 210°c heitum ofni i 25-30 mínútur eða þar til kjúklingurinn er fulleldaður. |
| 6. | Hitið hamborgarabrauð og smyrjið með ríflegu magni af majonesi. Setjið meðlæti að eigin vali á brauðið og endið með kjúklinginum. |
Leave a Reply