

| 700 g kjúklingalundir frá Rose Poultry | |
| 2 dl súrmjólk | |
| 3 dl Kornflex, mulið | |
| 2 msk hveiti | |
| 2 msk extra virgin ólífuolía frá Philippo Berio |
Fyrir 3-4
| 1. | Setjið súrmjólk í skál og látið kjúklinginn þar í. Marinerið í 30 mínútur. |
| 2. | Myljið Kornflex smátt og setjið í skál ásamt hveiti. Takið kjúklinginn úr súrmjólkinni og veltið upp úr Kornflexinu. Einn biti í einu. Leggið á plötu með smjörpappír. |
| 3. | Dreyið ólífuolíu yfir kjúklinginn og setjið í 200°c heitan ofn í 25-30 mínútur eða þar til kjuklingurinn er fulleldaður. |
| 4. | Á meðan kjúklingurinn er inn í ofni látið mango chutney, appelsínusafa, sojasósu og karrý maukið í pott ásamt vatni. Hitið og látið malla þar til sósan hefur þykknað. |
| 5. | Kreystið límónusafa í sósuna og takið pottinn af hitanum. |
| 6. | Dýfið kjúklingabitunum varlega í sósuna og setjið aftur á ofnplötuna. Hitið í 5 mínútur til viðbótað. |
| 7. | Berið fram með límónusneiðum, ristuðum sesamfræjum og vorlauk. |

Leave a Reply