Innihaldslýsing

700 g kjúklingalundir frá Rose Poultry
2 dl súrmjólk
3 dl Kornflex, mulið
2 msk hveiti
2 msk extra virgin ólífuolía frá Philippo Berio
Fyrir 3-4

Leiðbeiningar

1.Setjið súrmjólk í skál og látið kjúklinginn þar í. Marinerið í 30 mínútur.
2.Myljið Kornflex smátt og setjið í skál ásamt hveiti. Takið kjúklinginn úr súrmjólkinni og veltið upp úr Kornflexinu. Einn biti í einu. Leggið á plötu með smjörpappír.
3.Dreyið ólífuolíu yfir kjúklinginn og setjið í 200°c heitan ofn í 25-30 mínútur eða þar til kjuklingurinn er fulleldaður.
4.Á meðan kjúklingurinn er inn í ofni látið mango chutney, appelsínusafa, sojasósu og karrý maukið í pott ásamt vatni. Hitið og látið malla þar til sósan hefur þykknað.
5.Kreystið límónusafa í sósuna og takið pottinn af hitanum.
6.Dýfið kjúklingabitunum varlega í sósuna og setjið aftur á ofnplötuna. Hitið í 5 mínútur til viðbótað.
7.Berið fram með límónusneiðum, ristuðum sesamfræjum og vorlauk.
Þessi færsla er unnin í samstarfi við Innnes

Leave a Reply

Your email address will not be published.

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.