

| 800 g Rose Poultry kjúklingur (t.d. læri eða lundir) | |
| 2 dl sýrður rjómi | |
| 3 dl rjómi | |
| 2 dl parmesanostur, rifinn | |
| 8 sólþurrkaðir tómatar | |
| 3-5 hvítlauksrif | |
| handfylli spínat | |
| 1 gul paprika | |
| 1 rauð paprika | |
| 1 rautt chilí eða chilíflögur | |
| 2 msk sojasósa frá Blue dragon | |
| 3 msk chilísósa frá Heinz (ekki sweet chili) | |
| 2 msk Oscars kjúklingakraftur | |
| kirsuberjatómatar | |
| salt og pipar |
Fyrir 4
| 1. | Setjið olíu í pott og steikið kjúklinginn þar til hann hefur brúnast. Látið í ofnfast mót. |
| 2. | Skerið hvítlauk og chilí smátt og paprikuna gróflega. Hér má nota grænmeti að eigin vali. Setjið olíu í sama pott og léttsteikið grænmetið. Látið yfir kjúklinginn. |
| 3. | Hitið rjóma og sýrðan rjóma við vægan hita í sama potti. Þegar sýrður rjómi hefur blandast vel saman við rjómann takið af hitanum og bætið sojasósu, chilísósu, kjúklingakrafti. Bætið að lokum rifnum parmesan saman við. |
| 4. | Smakkið sósuna til með salti og pipar og hellið yfir allt. Látið handfylli af spínati yfir sósuna en ýtið því ekki í sósuna. Skerið tómata í tvennt og látið þá yfir. |
| 5. | Setjið í 200°c heitan ofn í 20-25 mínútur. |

Leave a Reply