Innihaldslýsing

2 dósir svartar baunir eða nýrnabaunir
1/2 rauðlaukur, saxaður
3 hvítlauksrif
1 paprika, smátt skorin
1 tsk chilíduft
1 tsk reykt paprikukrydd
1/2 tsk cumin (ekki kúmen)
klípa af cayenne pipar
salt og pipar
safi úr 1 límónu
1 pakki Mission tortillur
mozzarellaostur, rifinn
Meðlæti til dæmis: tómatar, avacado, kál, sýrður rjómi, agúrka, ferskt kóríander, guagamole.
Pam olía
Fyrir 3-4

Leiðbeiningar

1.Hellið vökvanum af baununum frá og hitið á pönnu ásamt lauk, hvítlauk, papriku, cumin, cayenne, salt og pipar. Kreistið límónusafanum yfir og hitið í 5 mínútur.
2.Látið ríflegt magn af mozzarella osti yfir tortillurnar og setjið baunirnar þar yfir. Rúllið þeim upp og látið í ofnfast mót.
3.Spreyjið PAM olíu yfir tortillurnar og látið ost yfir.
4.Eldið í 15-20 mínútur í 190°c heitum ofni.

Leave a Reply

Your email address will not be published.

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.