Innihaldslýsing

2 pakkar af risarækju frá Sælkerafiski
1 rautt chilí
3 hvítlauksrif
1/2 púrrulaukur
1/2-1 pakki sykurbaunir
10 sveppir
2 msk soyasósa frá Blue dragon
1 msk sweet chilísósa frá Blue dragon
2 msk ólífuolía
furuhnetur
salt og pipar
Fyrir 3-4

Leiðbeiningar

1.Skerið grænmetið niður.
2.Hitið olíu á pönnu og steikið grænmetið í stutta stund við háan hita. Bætið soya- og chilísósunni saman við. Takið af pönnunni og geymið.
3.Setjið olíu á pönnuna og steikið hvítlauk, chilí og risarækjurnar saman í 1-2 mínútur.
4.Bætið grænmetisblöndunni saman við og hitið saman í 1 mínútur. Bætið furuhnetum saman við.
5.Mér finnst gott að bera réttinn fram með steiktum hrísgrjónum. Þá sýð ég hrísgrjón og læt 2-3 egg á pönnu og hræri þeim saman. Bæti svo hrísgrjónunum saman við og hita saman í 1-2 mínútur. En einnig hægt að bera réttinn fram með fersku salati.

Leave a Reply

Your email address will not be published.

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.