Þessar kökur eru algjörlega ómótstæðilegar. Í þeim er leynihráefni sem gerir þær ótrúlega mjúkar að innan. Ég nota í þær kókos og möndlusmjörið frá Rapunzel sem gefur einstakt bragð og áferð.









| 1 bolli hveiti | |
| 1 tsk lyftiduft | |
| 1/2 tsk matarsódi | |
| 1/4 tsk salt | |
| 60g mjúkt smjör | |
| 1/2 bolli kókos & möndlusmjör frá Rapunzel | |
| 3/4 bolli cristallino hrásykur frá Rapunzel | |
| 2 stór egg við stofuhita | |
| 2 tsk vanilludropar | |
| 2 plötur 70% súkkulaði frá Rapunzel (160g) | |
| 1 bolli pekanhnetur saxaðar | |
| Sjávarsaltflögur |
| 1. | Blandið saman þurrefnum í skál og setjið til hliðar |
| 2. | Setjið smjör og sykur saman í skál og þeytið. Bætið við kókos & möndlusmjöri og þeytið áfram. Bætið við einu eggi og hrærið áður en síðara egginu er bætt út í. Bætið vanilludropunum saman við og hrærið aðeins. |
| 3. | Setjið þurrefnin saman við smjör/sykurblönduna og þeytið bara rétt þannig að deigið loði saman. Setjið saxað súkkulaði og hnetur saman við með sleikju. |
| 4. | Hitið ofninn í 175°C. Setjið bökunarpappír á ofnplötu og mótið |
| 5. | Bakið kökurnar í 14-16 mín. Fylgist vel með, þær eru tilbúnar þegar þær eru orðnar brúnar á köntunum. Varist að baka þær of lengi. |
| 6. | Þegar þær eru tilbúnar stráið sjávarsaltflögum yfir kökurnar ef vill og eftir smekk. Látið kökurnar kólna alveg á grind. |
Þessar kökur eru algjörlega ómótstæðilegar. Í þeim er leynihráefni sem gerir þær ótrúlega mjúkar að innan. Ég nota í þær kókos og möndlusmjörið frá Rapunzel sem gefur einstakt bragð og áferð.








Leave a Reply