
| 300 g DE CECCO penne pasta | |
| 2 msk ólífuolía | |
| 1 laukur, smátt saxaður | |
| 3 hvítlauksrif, pressuð | |
| 200 g beikon, skorið bita | |
| 350 g Rose Poultry kjúklingabringur | |
| 200 g kirsuberjatómatar | |
| 3 egg | |
| 1 dl matreiðslurjómi | |
| 1 tsk salt | |
| handfylli fersk basilíka (má sleppa) | |
| parmesan, rifinn |
Fyrir 4
| 1. | Sjóðið pasta samkvæmt leiðbeiningum á pakkingu. Pastað fer í ofn þannig að varist að ofsjóða. |
| 2. | Hitið olíu í potti og steikið lauk og hvítlauk. |
| 3. | Bætið beikoni saman við og steikið í 2 mínútur. |
| 4. | Skerið kjúklinginn í munnbita og setjið saman við hitt og steikið. |
| 5. | Skerið tómatana í tvennt og bætið saman við. |
| 6. | Setjið egg, matreiðslurjóma, parmesanost og salt saman í skál og hrærið vel saman. Bætið smá (um 1/2 dl) af rifnum parmesanosti saman við. |
| 7. | Bætið elduðu pasta út í pottinn og þá rjómablöndunni. Blandið vel saman. |
| 8. | Hellið í ofnfast mót og látið í 180°c heitan ofn í 10-15 mínútur. |
| 9. | Takið úr ofni og stráið parmesan og ferskri basilíku yfir allt. |



Leave a Reply