Ofnbakaður pastaréttur með beikonrjómasósu
Ofnbakaður pastaréttur með beikonrjómasósu

Innihaldslýsing

300 g DE CECCO penne pasta
2 msk ólífuolía
1 laukur, smátt saxaður
3 hvítlauksrif, pressuð
200 g beikon, skorið bita
350 g Rose Poultry kjúklingabringur
200 g kirsuberjatómatar
3 egg
1 dl matreiðslurjómi
1 tsk salt
handfylli fersk basilíka (má sleppa)
parmesan, rifinn
Fyrir 4

Leiðbeiningar

1.Sjóðið pasta samkvæmt leiðbeiningum á pakkingu. Pastað fer í ofn þannig að varist að ofsjóða.
2.Hitið olíu í potti og steikið lauk og hvítlauk.
3.Bætið beikoni saman við og steikið í 2 mínútur.
4.Skerið kjúklinginn í munnbita og setjið saman við hitt og steikið.
5.Skerið tómatana í tvennt og bætið saman við.
6.Setjið egg, matreiðslurjóma, parmesanost og salt saman í skál og hrærið vel saman. Bætið smá (um 1/2 dl) af rifnum parmesanosti saman við.
7.Bætið elduðu pasta út í pottinn og þá rjómablöndunni. Blandið vel saman.
8.Hellið í ofnfast mót og látið í 180°c heitan ofn í 10-15 mínútur.
9.Takið úr ofni og stráið parmesan og ferskri basilíku yfir allt.
Þessi uppskrift er unnin í samstarfi við Innnes

Leave a Reply

Your email address will not be published.

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.