
Uppskriftin er unnin eftir fyrirmynd af tasty.com

| 300 g De Cecco pasta, t.d. penne eða fusilli | |
| 5 sneiðar beikon | |
| salt og pipar | |
| 2 tsk ítalskt krydd | |
| 1 tsk paprikukrydd | |
| 3 hvítlauksrif, pressuð | |
| handfylli ferskt spínat | |
| 250 g kirsuberjatómatar | |
| 350 ml rjómi | |
| 100 g parmesan, rifinn | |
| 1/2 tsk chilíflögur | |
| 2 kjúklingabringur, t.d. frá Rose poultry |
| 1. | Sjóðið pasta samkvæmt leiðbeiningum á pakkningu. |
| 2. | Steikið beikon á pönnu þar til það er orðið stökkt. Takið af pönnunni og þerrið á eldhúspappír. |
| 3. | Skerið kjúkling í þunna strimla og steikið upp úr beikonfeitinni. Kryddið með salti, pipar, ítölsku kryddi og paprikukryddi. Steikið þar til kjúklingurinn er eldaður í gegn. |
| 4. | Bætið hvítlauk út á pönnuna og mýkjið. Skerið tómatana í fernt og bætið út á pönna ásamt spínati. Þegar spínatið er orðið mjúkt bætið þá rjóma, parmesan og chilíflögum saman við og látið malla í nokkrar mínútur. |
| 5. | Setjið pasta í skál og hellið öllum hráefnum af pönnunni yfir pastað. Bætið beikoni saman við og stráið parmesanosti yfir allt. |

Uppskriftin er unnin eftir fyrirmynd af tasty.com
Leave a Reply