Innihaldslýsing

3 kjúklingabringur, t.d. Rose poultry
parmesanostur
9 sneiðar PARMA parmaskinka
fersk salvía
smjör
ólífuolía
1-2 dl hvítvín
sítróna
svartur pipar

Leiðbeiningar

1.Skerið kjúklingabringurnar í þunnar sneiðar langsum. Setjið plastfilmu yfir þær og lemjið þær niður í ca. 1 cm þykkt.
2.Rífið niður parmesanost og setjið í miðju kjúklingsins. Leggið parmaskinku yfir bringurnar og tvö salvíublöð í miðjuna yfir parmaskinkuna. Þrýstið niður á bringurnar og þræðið upp á pinna.
3.Leggið hvern bita í hveiti á þeirri hlið sem kjúklingurinn er.
4.Látið smjör á pönnu og ólífuolíu og hitið. Steikið kjúklinginn á hvorri hlið í um 4-5 mínútur eða þar til eldaður í gegn.
5.Hellið hvítvíni út á pönnuna og látið gufa aðeins upp.
6.Takið kjúklinginn af pönnunni og leggið á disk. Kreystið smá sítrónu yfir, stráið parmesan og smá svörtum pipar.
7.Berið fram með tagliatelle og salati.
Þessi færsla er unnin í samstarfi við Innnes

Leave a Reply

Your email address will not be published.

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.