Innihaldslýsing

300 g De Cecco pasta, t.d. penne eða fusilli
5 sneiðar beikon
salt og pipar
2 tsk ítalskt krydd
1 tsk paprikukrydd
3 hvítlauksrif, pressuð
handfylli ferskt spínat
250 g kirsuberjatómatar
350 ml rjómi
100 g parmesan, rifinn
1/2 tsk chilíflögur
2 kjúklingabringur, t.d. frá Rose poultry
Fyrir 3-4

Leiðbeiningar

1.Sjóðið pasta samkvæmt leiðbeiningum á pakkningu.
2.Steikið beikon á pönnu þar til það er orðið stökkt. Takið af pönnunni og þerrið á eldhúspappír.
3.Skerið kjúkling í þunna strimla og steikið upp úr beikonfeitinni. Kryddið með salti, pipar, ítölsku kryddi og paprikukryddi. Steikið þar til kjúklingurinn er eldaður í gegn.
4.Bætið hvítlauk út á pönnuna og mýkjið. Skerið tómatana í fernt og bætið út á pönna ásamt spínati. Þegar spínatið er orðið mjúkt bætið þá rjóma, parmesan og chilíflögum saman við og látið malla í nokkrar mínútur.
5.Setjið pasta í skál og hellið öllum hráefnum af pönnunni yfir pastað. Bætið beikoni saman við og stráið parmesanosti yfir allt.
Þessi færslan er unnin í samstarfi við Innnes

 

 

Uppskriftin er unnin eftir fyrirmynd af tasty.com

 

 

Leave a Reply

Your email address will not be published.

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.