

| 1 askja Philadelphia rjómaostur með kryddjurtum og hvítlauk | |
| 1 askja Philadelphia rjómaostur hreinn | |
| 30 g sýrður rjómi | |
| 100 g mozzarella ostur, rifinn | |
| 2 tómatar, saxaðir | |
| 30 g sólþurrkaðir tómatar, saxaðir smátt | |
| 1/2 búnt fersk basilíka, söxuð | |
| 1 msk balsamik edik, Pilippo Berio | |
| 1/2 tsk hvítlaukskrydd | |
| 1/4 tsk chilíflögur | |
| salt og pipar | |
| Kryddhjúpur: | |
| 3/4 bolli brauðrasp | |
| 1 msk smjör | |
| 3 msk sólþurrkaðir tómatar, þerraðir og saxaðir smátt | |
| 3 msk fersk basilíka, smátt söxuð |
Fyrir 12-15 manns
| 1. | Látið öll hráefnin fyrir ostakúluna saman í skál og blandið vel saman. Látið plastfilmu utan um blönduna og mótið í kúlu. Frystið í 1-2 klst. |
| 2. | Gerið kryddhjúpinn: Bræðið smjör á pönnu og bætið brauðraspi saman við. Hrærið stöðugt í blöndunni þar til raspið hefur fengið gylltan lit. Kælið og bætið þá basilíku og sólþurrkuðu tómötum saman við. |
| 3. | Takið ostakúluna úr fyrsti og veltið upp úr kryddhjúpnum. |
| 4. | Látið ostakúluna á disk ásamt ferskum tómötum, ferskr basiliku og baquette eða góðu kexi. |

Leave a Reply