Innihaldslýsing

1 askja Philadelphia rjómaostur með kryddjurtum og hvítlauk
1 askja Philadelphia rjómaostur hreinn
30 g sýrður rjómi
100 g mozzarella ostur, rifinn
2 tómatar, saxaðir
30 g sólþurrkaðir tómatar, saxaðir smátt
1/2 búnt fersk basilíka, söxuð
1 msk balsamik edik, Pilippo Berio
1/2 tsk hvítlaukskrydd
1/4 tsk chilíflögur
salt og pipar
Kryddhjúpur:
3/4 bolli brauðrasp
1 msk smjör
3 msk sólþurrkaðir tómatar, þerraðir og saxaðir smátt
3 msk fersk basilíka, smátt söxuð
Fyrir 12-15 manns

Leiðbeiningar

1.Látið öll hráefnin fyrir ostakúluna saman í skál og blandið vel saman. Látið plastfilmu utan um blönduna og mótið í kúlu. Frystið í 1-2 klst.
2.Gerið kryddhjúpinn: Bræðið smjör á pönnu og bætið brauðraspi saman við. Hrærið stöðugt í blöndunni þar til raspið hefur fengið gylltan lit. Kælið og bætið þá basilíku og sólþurrkuðu tómötum saman við.
3.Takið ostakúluna úr fyrsti og veltið upp úr kryddhjúpnum.
4.Látið ostakúluna á disk ásamt ferskum tómötum, ferskr basiliku og baquette eða góðu kexi.
Þessi færsla er unnin í samstarfi við Innnes

Leave a Reply

Your email address will not be published.

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.