

| 300 g risarækjur frá Sælkerafiski | |
| 400 g hrísgrjónanúðlur fyrir 4 persónur | |
| 2 gulrætur, skornar langsum í þunnar sneiðar | |
| 1 agúrka, skorin í tvennt og í þunnar sneiðar | |
| 100 g ristaðar kasjúhnetur | |
| 1 rautt chillí, skorið í þunnar sneiðar | |
| ferskt kóríander | |
| Spicy chilísósa | |
| safi úr 1 1/2 stk af limónu | |
| 2 1/2 msk srirachasósa | |
| 1 tsk ferskt engifer, rifið fínt | |
| 1 hvítlauksrif, rifið fínt | |
| 3 msk fiskisósa frá Blue dragon (smakkað til) | |
| 1 msk vatn | |
| 2-3 msk sykur (smakkað til) |
Fyrir 4
| 1. | Blandið hráefnum fyrir chilísósuna saman í skál og blandið saman. Smakkið til. |
| 2. | Hitið olíu á pönnu og steikið risarækjurnar eða þar til þær eru orðnar bleikar á lit. Undir lok eldunartímans bætið um 2-3 msk af chilísósunni saman við. |
| 3. | Ristið kasjúhneturnar á pönnu og takið til hliðar. |
| 4. | Sjóðið núðlurnar skv. leiðbeiningu á pakkningu. Skolið með köldu vatni. |
| 5. | Skerð grænmetið og látið í skál ásamt núðlunum. Hellið helming af chilísósunni saman yfir núðlurnar og blandið vel saman. |
| 6. | Látið kasjúhnetur, rautt chilí og kóríander yfir núðlurnar. |
| 7. | Berið fram með risarækjunum og chilísósu. |

Leave a Reply