

| 500 g kjúklingabringur | |
| 1 laukur | |
| 3 hvítlauksrif | |
| 1 tsk chilíflögur | |
| 1 tsk paprika | |
| 1,5 tsk karrý | |
| salt og pipar | |
| 1 teningur kjúklingakraftur | |
| 1 dl vatn | |
| 500 ml 36% rjómi frá Örnu | |
| 400 g pastasósa | |
| 12 lasagnaplötur | |
| 80 g spínat | |
| 1 kúla ferskur mozzarella |
| 1. | Hitið olíu á pönnu. |
| 2. | Skerið lauk og hvítlauk smátt og steikið. |
| 3. | Skerið kjúkling í bita og setjið saman við. Brúnið kjúklinginn. |
| 4. | Bætið kryddum saman við og blandið öllu vel saman. |
| 5. | Látið pastasósu, kjúklingatening, vatn og rjóma saman við allt. |
| 6. | Látið malla í 5-10 mínútur við lágan hita. |
| 7. | Bætið spínati saman við og smakkið til með salti og pipar. |
| 8. | Penslið botninn á ofnföstu móti með olíu. |
| 9. | Látið smá af sósunni (bara sósu ekki kjöt) í botninn á sósunni. Leggið pastaplötur yfir. |
| 10. | Látið þá kjötsósuna yfir plöturnar og plötur yfir það og svo koll af kolli. |
| 11. | Látið í 200°c heitan ofn í 25 mínútur. |
| 12. | Takið þá úr ofni og látið mozzarella yfir allt. Látið í ofn í 10 mínútur. |

Leave a Reply