2 kg kjúklingavængir | |
2 msk lyftiduft (gerir þá stökka) | |
3/4 tsk salt | |
1/2 tsk svartur pipar | |
1 tsk paprika | |
1 tsk hvítlauksduft | |
Buffalósósa: | |
80 ml hot sauce | |
200 g púðursykur | |
2 msk smjör | |
Ranch sósa: | |
1 dl majonnes | |
1/2 dl sýrður rjómi | |
1 tsk hvítlauksduft | |
1-2 msk steinselja, smátt söxuð | |
1/2 tsk eplaedik | |
1/2 tsk worchestershire sósa | |
salt og pipar |
Mér finnst gott að strá sesamfræum og vorlauk yfir vængina og bera þá fram með kaldri ranch sósu og sellerí.
1. | Þerrið kjúklingavængina mjög vel með pappírsþurrku eða viskustykki. Það er mikilvægt að þá þeim vel þurrum og ágætt að kreysta þá aðeins til að ná vökva úr á meðan þeir eru þerraðir. |
2. | Blandið kryddum saman og stráið yfir vængina. Blandið kryddinu vel yfir vængina. |
3. | Raðið á plötu með olíubornum álpappír. |
4. | Látið í 190°c heitan ofn í 20 mínútur og snúið þá á hina hliðina og bakið í aðrar 20 mínútur. |
5. | Gerið sósuna á meðan. Látið hráefnin í pott og hitið þar til sykurinn er alveg bráðinn. Smakkið til. og bætið við hot sauce ef þið viljið fá meira |
6. | Takið væninga úr ofninum og setjið í skál. Hellið sósunni yfir og blandið vel saman. |
7. | Raðið aftur á ofnplötuna og látið í ofn í 5 mínútur á hvorri hlið í 210°c heitum ofni. |
8. | Gerið köldu sósuna með því að blanda öllum hráefnum saman í skál og kæla. |
Leave a Reply