Innihaldslýsing

2 kg kjúklingavængir
2 msk lyftiduft (gerir þá stökka)
3/4 tsk salt
1/2 tsk svartur pipar
1 tsk paprika
1 tsk hvítlauksduft
Buffalósósa:
80 ml hot sauce
200 g púðursykur
2 msk smjör
Ranch sósa:
1 dl majonnes
1/2 dl sýrður rjómi
1 tsk hvítlauksduft
1-2 msk steinselja, smátt söxuð
1/2 tsk eplaedik
1/2 tsk worchestershire sósa
salt og pipar
Mér finnst gott að strá sesamfræum og vorlauk yfir vængina og bera þá fram með kaldri ranch sósu og sellerí.

Leiðbeiningar

1.Þerrið kjúklingavængina mjög vel með pappírsþurrku eða viskustykki. Það er mikilvægt að þá þeim vel þurrum og ágætt að kreysta þá aðeins til að ná vökva úr á meðan þeir eru þerraðir.
2.Blandið kryddum saman og stráið yfir vængina. Blandið kryddinu vel yfir vængina.
3.Raðið á plötu með olíubornum álpappír.
4.Látið í 190°c heitan ofn í 20 mínútur og snúið þá á hina hliðina og bakið í aðrar 20 mínútur.
5.Gerið sósuna á meðan. Látið hráefnin í pott og hitið þar til sykurinn er alveg bráðinn. Smakkið til. og bætið við hot sauce ef þið viljið fá meira
6.Takið væninga úr ofninum og setjið í skál. Hellið sósunni yfir og blandið vel saman.
7.Raðið aftur á ofnplötuna og látið í ofn í 5 mínútur á hvorri hlið í 210°c heitum ofni.
8.Gerið köldu sósuna með því að blanda öllum hráefnum saman í skál og kæla.

Leave a Reply

Your email address will not be published.

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.