
| 1 msk ólífuolía | |
| 500 g humar | |
| 2 msk smjör | |
| 6 hvítlauksrif, pressuð | |
| 500 ml rjómi | |
| 1 1/2 dl hvítvín (kjúklingasoð) | |
| 1 1/2 dl parmesanostur, rifinn | |
| salt og pipar | |
| fersk steinselja, söxuð |
Fyrir 4
| 1. | Sjóðið spaghetti samkvæmt leiðbeiningum á pakkningu. |
| 2. | Hitið olíu á pönnu og léttsteikið humarinn. Takið af pönnunni og geymið. |
| 3. | Bætið smjöri út á pönnuna og steikið hvítlaukinn í 30 sek og bætið þá hvítvíni saman við. Látið malla í 2-3 mínútur. |
| 4. | Bætið þá rjóma og parmesan saman við og látið malla áfram í nokkrar mínútur, en þó ekki sjóða. |
| 5. | Bætið humrinum saman við og smakkið til með salti og pipar. |
| 6. | Berið fram með spaghetti og steinselju. |
Leave a Reply