
| 4 kjúklingabringur eða 10 kjúklingalæri | |
| 120 ml soyasósa | |
| 120 ml worcestershire sósa | |
| 8 msk dijon sinnep | |
| 50 g púðursykur | |
| 3 msk ólífuolía | |
| 1 tsk svartur pipar | |
| 1/2 tsk hvítlauksduft | |
| 1/2 tsk salt | |
| Cajun sósa: | |
| 1 dós sýrður rjómi | |
| 1 1/2 msk eplaedik | |
| 1 msk dijon sinnep | |
| 1 tsk cajun krydd (ég hef notað mexikaninn krydd frá kryddhúsinu) | |
| 1/2 tsk svartur pipar |
Þessi marinering er á eitthvað öðru leveli góð!
| 1. | Blandið öllum hráefnum í marineringuna saman í skál og leggið kjúklinginn þar í. Látið marinerast í að minnsta kosti klukkutíma helst yfir nótt. |
| 2. | Blandið öllum hráefnum fyrir sósuna saman í skál og geymið í kæli. |
| 3. | Grillið kjúklinginn þar til hann er eldaður í gegn. |
| 4. | Berið fram með sósunni og grilluðu grænmeti. |
Leave a Reply