Innihaldslýsing

4 kjúklingabringur eða 10 kjúklingalæri
120 ml soyasósa
120 ml worcestershire sósa
8 msk dijon sinnep
50 g púðursykur
3 msk ólífuolía
1 tsk svartur pipar
1/2 tsk hvítlauksduft
1/2 tsk salt
Cajun sósa:
1 dós sýrður rjómi
1 1/2 msk eplaedik
1 msk dijon sinnep
1 tsk cajun krydd (ég hef notað mexikaninn krydd frá kryddhúsinu)
1/2 tsk svartur pipar
Þessi marinering er á eitthvað öðru leveli góð!

Leiðbeiningar

1.Blandið öllum hráefnum í marineringuna saman í skál og leggið kjúklinginn þar í. Látið marinerast í að minnsta kosti klukkutíma helst yfir nótt.
2.Blandið öllum hráefnum fyrir sósuna saman í skál og geymið í kæli.
3.Grillið kjúklinginn þar til hann er eldaður í gegn.
4.Berið fram með sósunni og grilluðu grænmeti.

Leave a Reply

Your email address will not be published.

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.