
| 5 andalæri í dós | |
| sjávarsalt | |
| Rauðkál: | |
| 1/4 rauðkálshaus, rifið fínt (ég notaði mandolin) | |
| 1/2 agúrka, kjarnhreinsuð og skorin í strimla | |
| 1/2 búnt kóríander, saxað | |
| safi úr límónu | |
| Pikklaður rauðlaukur: | |
| 1 rauðlaukur | |
| 240 ml eplaedik | |
| 1 msk sykur | |
| 1 tsk salt | |
| Sósa: | |
| Sýrður rjómi | |
| 10-12 litlar tortillur |
Fyrir 4-6
| 1. | Takið andalærin úr dósinni og þerrið lítillega. Hér má salta og setja beint í ofn en ef ég hef tíma þá læt ég vel af sjávarsalti yfir lærin og geymi í kæli yfir nótt. Svo tek ég smá af saltinu frá og set inn í ofn. Bæði gott - þitt er valið. Eldið í 180°c heitum ofni í 20-25 mínútur. Gott er að láta á grill í lokin til að fitan verði stökk. Rífið kjötið niður með tveimur göfflum. |
| 2. | Blandið hráefnum fyrir rauðkálssalatið saman í skál og smakkið til með límónusafa. Geymið í kæli. |
| 3. | Rauðlaukurinn er skorinn í sneiðar, settur í sigti og sjóðandi vatni helt yfir. Í glerkrukku er öllu blandað saman, hrist vel og látið standa í ísskáp í allavega 30 mínútur en geymist í nokkra daga. |
| 4. | Hitið tortillurnar. Setjið sýrðan rjóma, andalæri, rauðkál, pikklan rauðlauk á tortilluna. Berið fram strax. |
Leave a Reply