Innihaldslýsing

700 g þorskur
salt og pipar
150 g beikon, skorið í litla bita og steikt
1 laukur
2,5 dl rjómi frá Gott í matinn
1 dós 18% sýrður rjómi frá Gott í matinn
1/2 búnt graslaukur, saxaður smátt
1 msk dijon sinnep
1 dl rifinn mozzarellaostur frá Gott í matinn
Fiskur er svo miklu meira en bara soðin ýsa. Hér höfum við þorskhnakka með dassi af rjóma og alveg fullt af osti sem gerir fiskréttinn að algjörum lúxus!

Leiðbeiningar

1.Skerið fiskinn í 2-3 bita, saltið og piprið.
2.Skerið beikon og lauk niður og steikið á pönnu.
3.Blandið rjóma, sýrðan rjóma, graslauk og sinnep saman í skál og hellið yfir fiskinn. Látið beikon og laukinn yfir og endið á að strá mozzarellaosti yfir allt.
4.Bakið í 210°c heitum ofni í 20 mínútur.
Þessi færsla er unnin í samstarfi við Gott í matinn

Leave a Reply

Your email address will not be published.

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.