Innihaldslýsing

5 andalæri í dós
sjávarsalt
Rauðkál:
1/4 rauðkálshaus, rifið fínt (ég notaði mandolin)
1/2 agúrka, kjarnhreinsuð og skorin í strimla
1/2 búnt kóríander, saxað
safi úr límónu
Pikklaður rauðlaukur:
1 rauðlaukur
240 ml eplaedik
1 msk sykur
1 tsk salt
Sósa:
Sýrður rjómi
10-12 litlar tortillur
Fyrir 4-6

Leiðbeiningar

1.Takið andalærin úr dósinni og þerrið lítillega. Hér má salta og setja beint í ofn en ef ég hef tíma þá læt ég vel af sjávarsalti yfir lærin og geymi í kæli yfir nótt. Svo tek ég smá af saltinu frá og set inn í ofn. Bæði gott - þitt er valið. Eldið í 180°c heitum ofni í 20-25 mínútur. Gott er að láta á grill í lokin til að fitan verði stökk. Rífið kjötið niður með tveimur göfflum.
2.Blandið hráefnum fyrir rauðkálssalatið saman í skál og smakkið til með límónusafa. Geymið í kæli.
3.Rauðlaukurinn er skorinn í sneiðar, settur í sigti og sjóðandi vatni helt yfir. Í glerkrukku er öllu blandað saman, hrist vel og látið standa í ísskáp í allavega 30 mínútur en geymist í nokkra daga.
4.Hitið tortillurnar. Setjið sýrðan rjóma, andalæri, rauðkál, pikklan rauðlauk á tortilluna. Berið fram strax.

Leave a Reply

Your email address will not be published.

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.