250 g tagliatelle | |
1 pakki risarækjur | |
1 tsk cajun krydd | |
1 msk smjör | |
1 msk ólífuolía | |
1 lítill laukur, saxaður | |
5 hvítlauksrif, söxuð | |
SÓSA: | |
300 ml rjómi | |
2 tsk cajun krydd | |
1 tsk sítrónupipar | |
2 tsk paprikukrydd | |
1 tsk chilíkrydd | |
2 tsk sykur | |
2 tsk oregano | |
1 msk sítrónusafi | |
parmesan | |
60 ml af pastavatninu |
Snilldar pastaréttur sem gleður mestu matgæðinga!
1. | Sjóðið pasta skv. leiðbeiningu á pakkningu. |
2. | Þerrið risarækjurnar og kryddið með cajunkryddi. |
3. | Látið smjör og ólífuolíu á pönnu og steikið risarækjurnar við háan hita í um 1-2 mínútur á hvorri hlið. Takið af pönnunni. |
4. | Á sömu pönnu steikið þið lauk og hvítlauk þar til laukurinn er orðinn glær. |
5. | Bætið rjómanum saman við og látið malla við vægan hita. Bætið kryddum saman við og látið malla aðeins áfram. |
6. | Bætið pasta, pastavatni og sítrónusafa saman við og veltið saman. |
7. | Bætið risarækjum saman við og látið parmesan yfir allt. |
Leave a Reply