

| HAFRAGRAUTUR YFIR NÓTT: | |
| 40 g OTA haframjöl (ég notaði grófa hafra en bæði gengur) | |
| 1 msk chia fræ | |
| 1 msk hörfræ | |
| 1 tsk kanill | |
| 180 ml möndlumjólk | |
| JÓGÚRTBLANDA: | |
| 150 g grísk jógúrt | |
| 1 msk hlynsíróp (eða hunang) | |
| BLÁBERJATOPPUR: | |
| 190 g frosin bláber | |
| 1 msk chiafræ | |
| fínrifinn börkur af sítrónu |
Fyrir 2
| 1. | Látið bláberin í pott og hitið við vægan hita í um 10 mínútur. Takið af hitanum, stappið með gaffli og bætið chiafræjum saman við. Geymið. |
| 2. | Blandið öllum hráefnunum fyrir hafragrautinn saman og látið í krukkur. |
| 3. | Blandið agave sírópi og grískri jógúrt saman og setjið yfir hafragrautinn. |
| 4. | Endið á að láta bláberjamaukið jógúrtið og rífið að lokum sítrónubörk yfir allt. |
| 5. | Lokið krukkunum og geymið í kæli yfir nótt. |

Leave a Reply