Þessi færsla er unnin í samstarfi við Innnes.
2 msk smjör | |
2 msk ólífuolía | |
1 laukur, saxaður | |
3 hvítlauksrif, smátt söxuð | |
1 msk engifer, smátt saxað | |
3 msk karrý | |
1 1⁄2 tsk salt | |
1 tsk cumin (ekki kúmen) | |
hnífsoddur cayenne-pipar | |
1200 g kjúklingalæri, t.d. frá Rose Poultry | |
2 tómatar, saxaðir | |
1 msk kóríanderkrydd | |
120 g kasjúhnetur, ristaðar | |
1 dós kókosmjólk, t.d. frá Blue dragon | |
100 g strengjabaunir | |
1. | Hitið smjör og olíu saman í potti. Setjið lauk, hvítlauk og engifer í pottinn og steikið við vægan hita þar til laukurinn er farinn að mýkjast. |
2. | Hrærið í blöndunni allan tímann svo laukurinn brenni ekki við. Bætið kryddum saman við og blandið vel. Steikið í 1-2 mínútur. Bætið kjúklingi saman við og veltið honum upp úr blöndunni. |
3. | Steikið kjúklinginn í 3-4 mínútur. Bætið tómötum og kóríander saman við og hitið að suðu. Setjið lok á pottinn og látið malla við meðalhita í 30 mínútur eða þar til kjúklingurinn er fulleldaður. |
4. | Setjið næstum allar ristuðu kasjúhneturnar í matvinnsluvél og maukið vel. Bætið maukinu síðan út í pottinn ásamt sykurbaunum og þeim fáeinu kasjúhnetum sem ekki voru maukaðar. |
5. | Látið malla í 5 mínútur til viðbótar. |
6. | Bætið kókosmjólkinni saman við og hitið en látið ekki sjóða. |
Þessi færsla er unnin í samstarfi við Innnes.
Leave a Reply