
Uppskriftin kemur upprunarlega af hinu flotta bloggi Krydd og krásir.
Sesamolían frá Blue dragon setur punktinn yfir i-ið í þessum rétti.
Uppskriftin er unnin í samstarfi við Innnes

| 600 g lax, úrbeinaður og roðflettur | |
| safi úr 1 sítrónu | |
| börkur af 1/2 sítrónu | |
| börkur af 1/2 appelsínu | |
| 1 tsk tamarí sósa | |
| 1 tsk sesamolía, frá Blue dragon | |
| 1 avacado | |
| 1 mangó | |
| 2-3 vorlaukar | |
| 1 rauð paprika | |
| 1/2-1 chilí | |
| handfylli af fersku kóríander | |
| salt og pipar |
| 1. | Skerið laxinn í litla bita. |
| 2. | Setjið sítrónusafa, sítrónu- og appelsbörk, tamarín sósu og olíu saman í skál og hrærið saman. Hellið yfir laxinn og setjið í ísskáp í 6 tíma eða lengur og látið fiskinn eldast upp úr vökvanum. |
| 3. | Skerið avakadó, mangó, vorlauk og papriku smátt. |
| 4. | Saxið chilí smátt og kóríander gróflega. |
| 5. | Blandið öllu saman í skál og látið í kæli í 30 mínútur áður en þetta er borið fram. |

Uppskriftin kemur upprunarlega af hinu flotta bloggi Krydd og krásir.
Sesamolían frá Blue dragon setur punktinn yfir i-ið í þessum rétti.
Uppskriftin er unnin í samstarfi við Innnes
Leave a Reply