Þetta er einn af þessum letiréttum og tilvalinn þegar okkur langar í eitthvað gott en nennum ekki mikilli fyrirhöfn. Svo er líka stór plús að börnin borða þetta með bestu lyst.

Þessi færsla er unnin í samvinnu við Innnes.
| 2-4 tortillur, t.d. frá Mission með grillrönd | |
| olía til steikingar | |
| 500 g nautahakk | |
| 1 bréf tacokrydd (eða 2 tsk af Mexíkaninn tacokrydd frá Kryddhúsinu) | |
| 2 dl bbq sósa, t.d. sweet bbq sauce frá HEINZ | |
| 200 g gular (mais)baunir | |
| 1 rauð paprika, skorin í litla teninga | |
| 1 lítill rauðlaukur, saxaður | |
| 300 g cheddar ostur, rifinn |
| 1. | Hitið olíu á pönnu og steikið nautahakk og saxaðan lauk. Bætið tacokryddinu saman við. |
| 2. | Raðið tortillum á ofnplötu með smjörpappír og hitið í 180°c heitum ofni í 5 mínútur |
| 3. | Skiptið nautahakkinu á tortillurnar og látið ost yfir kjötið og látið aftur inn í ofn í um 10 mínútur eða þar til tortillurnar eru orðnar stökkar. |
| 4. | Berið fram með t.d. sýrðum rjóma, ostasósu og káli. |

Leave a Reply