
| 180 g púðursykur | |
| 70 g sykur | |
| 220 g smjör, við stofuhita | |
| 2 msk síróp | |
| 2 tsk vanilludropar | |
| 2 egg | |
| 300 g hveiti | |
| 60 g haframjöl | |
| 1 tsk lyftiduft | |
| 1/2 tsk matarsódi | |
| 100 g rúsínur |
| 1. | Hrærið púðursykri,sykri, smjöri, sírópi og vanilludropum vel saman. Bætið eggjum saman við, einu í einu. |
| 2. | Setjið hveiti, haframjöl, lyftiduft og matarsóda saman. Hnoðið og bætið rúsínum saman við. |
| 3. | Setjið með matskeið á bökunarplötu hulda smjörpappír. Þrýstið þeim örlítið niður með gaffli. |
| 4. | Bakið við 180°c í 15 mínútur eða þar til þær hafa fengið gylltan lit. Takið úr ofni og kælið á ofngrind. |
Leave a Reply