Guðdómlega mjúkar bollakökur sem henta vel við ýmis tilefni. Þetta er sú uppskrift sem ég hef stuðst við í mörg ár og klikkar aldrei.
Þetta krem slær í gegn hver sem það fer, en fyrir þá sem vilja alls ekki kaffi má setja 1 msk af rjóma í staðin.

| 250 gr Hveiti | |
| 200 gr Sykur | |
| 6 msk Kakó frá Himneskri Hollustu | |
| 1/2 tsk Matarsódi | |
| 1 tsk Lyftiduft | |
| 3 Egg | |
| 1 msk Vanilludropar | |
| 220 ml Vatn | |
| 150 ml brædd Kókosolía frá Himneskri Hollustu | |
| 1 dl Kókosmjöl frá Himneskri Hollustu | |
| KREM | |
| 130 gr Smjör við stofuhita | |
| 400 gr flórsykur | |
| 1 msk vanilludropar | |
| 1 msk Kakó frá Himneskri Hollustu | |
| 1 msk sterkt kaffi (uppáhelt) |
| 1. | Þeytið egg og sykur saman |
| 2. | Bætið við eggjum og blandið |
| 3. | Blandið rest af innihalds efnum við og hrærið þar til vel blandað |
| 4. | Skiptið niður í bollakökuform, um það bil 20 stykki |
| 5. | Bakið við 180 gráður í 18 mínútur |
| 6. | KREM |
| 7. | Þeytið smjör í 4 mín á miklum hraða til að ná því léttu og ljósu |
| 8. | Bætið við flórsykri og þeytið þar til þetta blandast vel saman |
| 9. | Bætið rest við og hrærið saman |
| 10. | Smyrjið bollakökur með kremi eða setjið í sprautustút og skreytið |
| 11. | Mikilvægt er að leyfa kökunum að kólna áður en kremið er sett á |

Leave a Reply