200 g blómkál | |
1/2 dl parmesanostur, rifinn | |
1/2 dl mozzarellaostur, rifinn | |
1/2 tsk oregano | |
1/2 tsk chilíflögur | |
2 msk möndlumjöl | |
1/2 tsk salt | |
1 egg | |
1-2 msk vatn |
Gerir tvær 12" pizzur
1. | Blómkálsbotnar: Setjið öll hráefnin í blandara og blandið þar til þetta er orðið að deigi. Bætið við vatni ef þörf er á. |
2. | Skiptið blómkálsdeiginu í tvennt og fletjið út (ég hef botnana frekar þunna). Gott er að láta smjörpappír fyrir og fletja þá þannig út. Setjið í 200°c heitan ofn í um 10 mínútur eða þar til þeir eru farnir að brúnast. |
3. | Takið botnana úr ofni. Setjið tómatrjómasósuna yfir botnana og því næst parmaskinku, hvítlauk, chilí og döðlur. Setjið aftur inn í ofn í 5-10 mínútur eða þar til parmaskinkan er orðin aðeins stökk. |
4. | Skerið í sneiðar og berið fram með góðri ólífuolíu og svörtum pipar. Einnig er mjög gott að kreysta sítrónusafa yfir rucola og bera fram með pizzunni. |
Leave a Reply