Innihaldslýsing

200 g blómkál
1/2 dl parmesanostur, rifinn
1/2 dl mozzarellaostur, rifinn
1/2 tsk oregano
1/2 tsk chilíflögur
2 msk möndlumjöl
1/2 tsk salt
1 egg
1-2 msk vatn
Gerir tvær 12" pizzur

Leiðbeiningar

1.Blómkálsbotnar: Setjið öll hráefnin í blandara og blandið þar til þetta er orðið að deigi. Bætið við vatni ef þörf er á.
2.Skiptið blómkálsdeiginu í tvennt og fletjið út (ég hef botnana frekar þunna). Gott er að láta smjörpappír fyrir og fletja þá þannig út. Setjið í 200°c heitan ofn í um 10 mínútur eða þar til þeir eru farnir að brúnast.
3.Takið botnana úr ofni. Setjið tómatrjómasósuna yfir botnana og því næst parmaskinku, hvítlauk, chilí og döðlur. Setjið aftur inn í ofn í 5-10 mínútur eða þar til parmaskinkan er orðin aðeins stökk.
4.Skerið í sneiðar og berið fram með góðri ólífuolíu og svörtum pipar. Einnig er mjög gott að kreysta sítrónusafa yfir rucola og bera fram með pizzunni.
Þessi færsla er unnnin í samstarfi við Innnes

Leave a Reply

Your email address will not be published.

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.