Vegan karamellukaka með kókosrjóma og súkkulaðisósu
Botn
80 g möndlur
100 g haframjöl
1/4 tsk salt
60 ml kókosolía
3 msk hlynsíróp
2 msk mjúkt hnetusmjör
Látið möndlur, haframjöl og salt í matvinnsluvél og blandið gróflega saman við. Bræðið kókosolíuna og blandið við hafrablönduna ásamt hlynsírópi og hnetusmjöri. Blandið öllu saman. Setjið í form með smjörpappír og stingið deigið með gaffli á nokkrum stöðum. Bakið í 180°c heitum ofni í 12-15 mín. Takið úr ofni og kælið.
Fylling
1 dós Blue dragon kókosmjólk (sett í kæli yfir nótt)
1-2 msk síróp
1 tsk vanillusykur
125 ml kókosolia
80 ml kókosrjómi
125 ml hlynsiróp
185 g hnetusmjör
1/4 tsk sjávarsalt
1/2 tsk vanillusykur
Látið hrærivélaskál í ísskáp 1-2 klst. Hellið vökvanum frá kókosmjólkinni í glas (getið notað í þeytinga síðar) og takið hvíta massann og setjið í hrærivélina. Þeytið þar til farin að líkjast áferð rjóma. Bætið sírópi og vanillusykri saman við. Setjið kókosolíu í pott ásamt 80 ml af kókosrjómanum sem þið voruð að búa til. Hitið við vægan hita þar til kókosolían er fljótandi. Takið af hitanum og bætið hlynsírópi, hnetusmjöri, sjávarsalti og vanillusykri saman við og hrærið vel. Setjið yfir botninn og látið í kæli í 2 klst.
Súkkulaðisósa
1 msk Cadbury's kakó
1 msk kókosolía, fljótandi
1/2 msk síróp
Blandið öllu saman rétt áður en kakan er borin fram þar sem súkkulaðisósan harðnar.
Þessi kaka þarfnast smá undirbúnings en er svo mikið þess virði.
This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.
Leave a Reply