5 andalæri í dós | |
sjávarsalt | |
Rauðkál: | |
1/4 rauðkálshaus, rifið fínt (ég notaði mandolin) | |
1/2 agúrka, kjarnhreinsuð og skorin í strimla | |
1/2 búnt kóríander, saxað | |
safi úr límónu | |
Pikklaður rauðlaukur: | |
1 rauðlaukur | |
240 ml eplaedik | |
1 msk sykur | |
1 tsk salt | |
Sósa: | |
Sýrður rjómi | |
10-12 litlar tortillur |
Fyrir 4-6
1. | Takið andalærin úr dósinni og þerrið lítillega. Hér má salta og setja beint í ofn en ef ég hef tíma þá læt ég vel af sjávarsalti yfir lærin og geymi í kæli yfir nótt. Svo tek ég smá af saltinu frá og set inn í ofn. Bæði gott - þitt er valið. Eldið í 180°c heitum ofni í 20-25 mínútur. Gott er að láta á grill í lokin til að fitan verði stökk. Rífið kjötið niður með tveimur göfflum. |
2. | Blandið hráefnum fyrir rauðkálssalatið saman í skál og smakkið til með límónusafa. Geymið í kæli. |
3. | Rauðlaukurinn er skorinn í sneiðar, settur í sigti og sjóðandi vatni helt yfir. Í glerkrukku er öllu blandað saman, hrist vel og látið standa í ísskáp í allavega 30 mínútur en geymist í nokkra daga. |
4. | Hitið tortillurnar. Setjið sýrðan rjóma, andalæri, rauðkál, pikklan rauðlauk á tortilluna. Berið fram strax. |
Leave a Reply