Innihaldslýsing

100 gr Apríkósur
1 dl Kashjúhnetur eða Furuhnetur
1/2 dl Ólífuolía
Salt
Þetta pestó er gjörólíkt öllum þeim sem maður getur keypt útí búð en á sama tíma svo ofur einfalt og ég er því fljótari að henda í þetta heldur en að stökkva útí búð. Apríkósurnar gera það sætt – svo það verður dásamlega bragðgott. Ég hef alltaf notað apríkósurnar frá Himneskri Hollustu því þær eru...

Leiðbeiningar

1.Öll innihaldsefni sett í blender eða matvinnsluvél
2.Þarf líklega að losa stundum frá og ýta niður frá hliðum
3.Láta blanda þar til verður kekkjalaust

Þetta pestó er gjörólíkt öllum þeim sem maður getur keypt útí búð en á sama tíma svo ofur einfalt og ég er því fljótari að henda í þetta heldur en að stökkva útí búð. Apríkósurnar gera það sætt – svo það verður dásamlega bragðgott. Ég hef alltaf notað apríkósurnar frá Himneskri Hollustu því þær eru mjúkar og henta því vel þegar þarf að mauka þær. Ef apríkósurnar eru þurrar verður pestóið ekki eins mjúkt, ferkst og gott.

Ég borða þetta yfirleitt á hrökkbrauð, með lasanja, eða með kjúklinga -og fiskiréttum.

Þessi færsla er unnin í samstarfi við Himneska Hollustu, en það eru vörur sem ég haf alltaf kosið að nota í þessa uppskrift.

      

Leave a Reply

Your email address will not be published.

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.