Kornflex “popp” kjúklingur með hunangs bbq sósu
Kornflex “popp” kjúklingur með hunangs bbq sósu

Innihaldslýsing

900 g kjúklingabringur, skornar í munnbita
125 g hveiti
140 g Kornflex, gróflega mulið
½ tsk salt
½ tsk svartur pipar
½ tsk hvítlauksduft
¼ tsk paprikukrydd
2 stór egg
60 ml mjólk
1 flaska hunangs bbq sósa frá Stonewall kitchen
Þessi færsla er unnin í samstarfi við Stonewall Kitchen á Íslandi SK vörurnar fást í verslunum Hagkaups, Melabúðinni, Kjöthöllinni, Garðheimum og nokkrum vel völdum verslunum Krónunnar.

Leiðbeiningar

1.Setjið kjúklinginn í skál ásamt hveiti og blandið vel saman.
2.Í aðra skál setjið þið Kornflex, salt og pipar, hvítlauksduft og paprikudrykk. Geymið.
3.Látið egg og mjólk í aðra skál og þeytið saman.
4.Dýfið kjúklingabitunum í eggjablönduna og látið renna af þeim og veltið þá upp úr Kornflexi.
5.Setjið á bökunarplötu með smjörpappír. Setjið í 200°c heitan ofn og bakið í 15-20 mínútur.
6.Þegar kjúklingurinn er fulleldaður takið úr ofni og setjið í skál. Hitið bbq sósuna og hellið yfir bitana. Magn að eigin smekk.
7.Það er líka hægt að sleppa þessu stigi og hella sósunni í skál og bera hana fram með kjúklingnum.

Þessi færsla er unnin í samstarfi við Stonewall Kitchen á Íslandi

SK vörurnar fást í verslunum Hagkaups, Melabúðinni, Kjöthöllinni, Garðheimum og nokkrum vel völdum verslunum Krónunnar.

Leave a Reply

Your email address will not be published.

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.