

| Súkkulaðimús: | |
| 200 g suðusúkkulaði | |
| 200 ml 36% rjómi frá Örnu | |
| 50 ml Baileys | |
| 3 stór egg | |
| klípa af salti | |
| Baileys rjómi: | |
| 200 ml 36% rjómi frá Örnu | |
| 3 msk flórsykur | |
| 50 ml Baileys | |
| 1 tsk vanilludropar | |
| Skreytt með bræddu eða söxuðu súkkulaði |
Fyrir 6-8
| 1. | Aðskiljið eggjarauður og eggjahvítur. Þeytið eggjahvítur ásamt klípu af salti í 3-5 mínútur eða þar til þær eru orðnar þéttar í sér. |
| 2. | Bræðið súkkulaði yfir vatnsbaði eða í örbylgjuofni ásamt rjómanum og baileys. Kælið lítillega. |
| 3. | Hrærið eggjarauðum saman við súkkulaðiblönduna. |
| 4. | Bætið eggjahvítum rólega saman við og veltið saman við með sleif þar til allt hefur blandast vel saman. |
| 5. | Skiptið búðingnum niður á skálar 6-8 eftir magni í hverri skál. |
| 6. | Kælið búðinginn í ísskáp í að minnsta kosti klukkustund. |
| 7. | Baileys rjómi: Þeytið rjóma, flórsykur, Baileys og vanilludropa saman. Látið yfir búðinginn og toppið með súkkulaði. |

Leave a Reply