Innihaldslýsing

2 egg
90g döðlusíróp frá Rapunzel
65g kókossykur frá Rapunzel
2 bananar vel þroskaðir
135g Kornax heilhveiti
70 g fínt haframjöl, t.d frá Rapunzel
3 tsk lyftiduft
1/2 tsk himalaya eða sjávarsalt
1 tsk vanilludropar
70g brædd kókosolía frá Rapunzel
150g fersk bláber (mega vera frosin)
Þetta bananabrauð er saðsamt og næringarríkt. Döðlusírópið færir því smá karamellukeim en bláberin koma með smá sýru á móti sætunni í bönununum. Fullkomið í helgarbaksturinn.

Leiðbeiningar

1.Þeytið saman egg, sykur og döðlusíróp þangað til blandað verður létt.
2.Stappið banana og setjið aðeins til hliðar.
3.Takið 1 msk af heilhveitinu frá. Blandið svo rest af hveiti, hafra, lyftiduft og salt saman í skál og hrærið aðeins í með gaffli. Blandið saman við eggjablönduna.
4.Bætið þá bönunum, vanilludropum og kókosolíu saman við.
5.Veltið bláberjum upp úr 1 msk af hveilhveiti og blandið varlega saman við deigið með sleikju,
6.Setjið í vel smurt ílangt (jólaköku) form og bakið við 180°C í ca. 50 mín.

 

Þessi færsla er unnin í samstarfi við Innnes sem flytur inn Rapunzel.

Leave a Reply

Your email address will not be published.

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.