

| 120 g hveiti | |
| 1 1/2 msk lyftiduft | |
| 280 ml sódavatn | |
| 1/2 tsk sjávarsalt | |
| 1/4 tsk hvítur pipar | |
| 500 g litlar tígrisrækjur, frá Sælkerafiski | |
| Wesson olía til steikingar |
Smáréttur fyrir 3-4
| 1. | Gerið sósuna fyrst með því að blanda öllum hráefnum í skál og smakka til með chilí mauki. |
| 2. | Blandið saman hveiti, lyftidufti, salti og pipar og hrærið vel. |
| 3. | Veltið rækjunum upp úr hveitinu og setjið á disk. |
| 4. | Hellið sódavatni saman við hveitiblönduna sem eftir er og hrærið saman þar til deig myndast. |
| 5. | Dýfið hveitihúðuðum rækjum í deigið. |
| 6. | Hitið olíu rólega í potti eða wok pönnu. Þegar hún er orðin nægilega heit, látið hluta af rækjunum þar í og steikið. |
| 7. | Þegar rækjurnar eru orðnar stökkar og brúnar að lit takið úr olíunni og þerrið á pappír. |
| 8. | Setjið í skál og hellið chilí sósunni yfir og blandið vel saman. |
| 9. | Berið fram strax. |

Leave a Reply